Anna Sigga Handverk
Hæ hæ!
Ég heiti Anna Sigga og er forfallinn föndrari af lífi og sál.
Ýmiskonar föndur/skapandi vinna hefur fylgt mér frá því ég var barn, en ég myndi segja að móðir mín og ömmur séu mínar handavinnu fyrirmyndir.
Ég hef verið hvað lengst í pappírsföndri og má þar helst nefna albúmagerð, kortagerð, ýmiskonar bækur og minningaralbúm (scrapbooking).
Í raun er ég alger föndurfíkill og föndra einnig mikið úr allskonar leir, perlum, skrautvírum, vínyl, gler og öllu pappírstengdu.
Sérpantanir
Vantar þig persónulega gestabók, albúm eða kort?
Ég býð upp á sérpöntun á gestabókum, ýmskonar albúmum og kortum. Það þarf minnst 4 vikna fyririvara á sérpöntunum. Öll kort, albúm, bækur eru algerlega einstakar þar sem´g geri einungis eitt eintak af hverju. Verð fer eftir stærð og umfangi.
annasigga.handverk(hjá)gmail.com
Gestabækur
verð frá 5.000 - 10.000 kr
Vantar þig gestabók í brúðkaup, skírn, fermingu eða fyrir sérstakt tilefni? Sendu mér línu og við finnum bestu lausina.
Exploding kort/box
2.500 kr
Sérhönnuð exploding kort/box - þú getur valið grunnlit á boxi, litóna, nafn viðtkaanda o.s.frv. Sendu mér línu og við finnum bestu lausina.
Myndalbúm
verð frá 5.000 kr.
Sérhönnuð albúm fyrir brúðkaup, skírn, fyrst ár barnsins eða fyrir annað sérstakt tilefni? Sendu mér línu og við finnum bestu lausina.