Prjónamerki - hvað er það eiginlega?

Prjónamerki eru lítil og þægileg merki til að hjálpa okkur við prjónaskapinn, þau eru ekki nauðsynleg en mér finnst þau afskaplega falleg og skemmtileg.

Prjónamerki gera verið allskonar í laginu, í mörgum stærðum og úr allskonar efnivið. Þau prjónamerki sem ég geri eru aðallega úr polymer leir, perlum, steinum og ýmsu fallegu skrauti.

Opnanlegu prjónamerkin eru tilvalin í það að merkja réttuna á því verkefni sem verið er að prjóna, til að telja umferðir, merkja hversu mikið hefrur náðst að prjóna síðan síðast og til að notast við merkingar í hekli.

Lokuðu prjónamerkin er hægt að nota á margvíslegan hátt. Hægt er að notast við þau til að merkja upphaf umferðarinnar og þannig prjónað áfram eins og enginn sé morgundagurinn. Þau eru einnig góð til að merkja úrtökur, hvar mynstur tekur breytingum og þvíumlíkt.

Prjónamerki eru því hægt að notast við margskonar verkefni til að gera handavinnuna enn skemmtilegri. Svo finnst mér voða gaman að notast við prjónamerki í stíl við hvert verkefni hverju sinni.

Previous
Previous

Kort og alcohol ink