Skreyttar bækur
Að mínu mati þá er aldrei hægt að eiga of margar skissubækur/glósubækur, og enn skemmtilegra er að eiga bækur sem eru einungis til í takmörkuðu upplagi.
Ef ég sé fallegar plain minnisbækur þá kaupi ég ávallt nokkrar til þess að skreyta sjálf og það er eitt það skemmtlegasta sem ég geri.
Ég geri líka bækur frá grunni, og þá notast ég oftast við chipboard, þykkan pappír, ýmiskonar scrapbook pappír, gorma og auðvitað slatta af skrauti .
Oftast notast ég við blóm, ýmiskonar skrautpappír, glimmer og handlitaða stimpla. En það besta við svona bókagerð er að það er hægt að nota hvað sem er.
Takk fyrir innlitið.