Skissubækur og Alcohol blek.

Mér finnst afskaplega gaman að útbúa mínar eigin skissubækur (eða notebooks) í litlu gormvélinni minni.

Pappírin í þessar bækur gerði ég sjálf með því að notast við Yupo pappír og Alcohol blek. Blekið nota ég til að lita pappírinn, og það er alltaf jafn skemmtilegt að sjá hverja mynd verða til á sinn hátt.

Síðan skanna ég þessar sömu myndir og prenta þær á ljósmyndapappír, plasta og set þær saman í bók.

Next
Next

Litrík krakakkort