Þar sem ég er mikil prjónakona þá fór ég einnig útí það að föndra mín eigin prjónamerki.
Ég kolféll fyrir polymer leir og jeminn hvað þetta er skemmtilegt. Það er eitthvað svo illilega róandi og skapandi við það að móta þennan skemmtilega leir í allskonar lítil prjónamerki.
Hér eru nokkur dæmi um þau leir-prjónamerki sem ég er að föndra þessa dagana.